Persónuverndarstefna Lótushúss

1. Lótushús hefur einsett sér að tryggja öryggi og trúnað þeirra persónuupplýsinga sem unnið er með í tengslum við starfsemi skólans. Persónuverndarstefnu þessari er ætlað að upplýsa þig um hvaða persónuupplýsingum Lótushús safnar, með hvaða hætti Lótushús nýtir slíkar persónuupplýsingar og hverjir fá aðgang að upplýsingunum.

2. Við söfnum persónuupplýsingum í eftirfarandi tilvikum:

a) þegar þú skráir þig á námskeið (nafn, netfang og símanúmer)
b) þegar þú skráir þig á póstlista (nafn og netfang)

3. Við notum persónuupplýsingar vegna skráningar á námskeið aðeins til að koma til þín skilaboðum sem varða námskeiðið sem um ræðir. Við notum persónuupplýsingar vegna skráningar á póstlista aðeins til að senda þér póst frá þeim lista sem þú hefur beðið um eða veitt samþykki fyrir að vera skráð/ur á.

4. Við vinnum ekki með persónuupplýsingarnar á neinn hátt og látum þriðja aðila aldrei fá persónuupplýsingar um þig nema fyrir liggi samþykki þitt.

5. Við notum Mailchimp (https://mailchimp.com/) til að halda utan um þær persónuupplýsingar sem varða póstlista Lótushúss. Þú getur skráð þig af póstlistanum hvenær sem er með því að smella á hlekkinn sem býður upp á afskráningu neðst í hverjum tölvupósti sem sendur er út á póstlistann eða með því að senda okkur beiðni í tölvupósti á netfangið lotushus@lotushus.is

6. Þú hefur alltaf heimild til að fá aðgang að þeim upplýsingum sem þú hefur afhent okkur, óska eftir leiðréttingu, breytingum eða eyðingu gagna eftir því sem við á. Fyrir slík erindi biðjum við þig að senda okkur skriflega beiðni á netfangið lotushus@lotushus.is

7. Persónuverndarstefna þessi kann að taka breytingum vegna nýrra lagafyrirmæla eða túlkunar eftirlitsstofnanna á framkvæmd laga um persónuvernd. Við mælum þess vegna með því að þú kynnir þér reglulega persónuverndarstefnu Lótushúss.