Hringferli tímans

Hringferli tímans Þú hefur djúpan skilning á því að allt í lífinu fer í hringi. Dagur fylgir nótt, vor fylgir vetri, dauða fylgir nýtt líf. Þú býrð því yfir innri sátt og jafnaðargeði og veist að þegar eitthvað bjátar á, eru bjartari tímar alltaf á næsta leyti. lotushus.is

Heilindi

Heilindi Hugsanir þínar, orð og gerðir einkennast af heilindum og heiðarleika. Þú hefur því ekkert að fela og upplifir því óttaleysi og mikinn innri styrk. lotushus.is

Viska

Viska Þú ert í góðum tengslum við eigið sjálf og gefur þú þér tíma og rými til að hlusta á rödd þinnar innri visku og leyfir henni að leiða þig áfram í lífinu. lotushus.is

Kraftaverk

Kraftaverk Þú skapar rými fyrir kraftaverk í lífi þínu með því að sleppa fyrirfram mótuðum hugmyndum um það hvernig hlutirnir eigi að vera. Þú heldur huga og hjarta opnum og leyfir kraftaverkum lífsins að birtast þér. lotushus.is

Rós

Rós Þú opnar hjarta sálarinnar í fullu trausti til lífsins. Þannig getur ilmur þinn streymt út í umhverfið, fegrað og glatt. Ilmur friðar, ilmur kærleika, ilmur hamingju. lotushus.is

Fegurð lífsins

Fegurð lífsins Þú kannt að meta fjölbreytileika lífsins og átt auðvelt með að sjá fegurðina í hverri sál. Þannig laðar þú fram það besta í öllu og öllum. lotushus.is

Hamingja

Hamingja Þú upplifir djúpa hamingju þegar þú kynnist þínu sanna, einstaka sjálfi og deilir því besta af þér með öðrum. lotushus.is

Nýr heimur

Nýr heimur Í stað þess að reyna að breyta ytri aðstæðum, velur þú að skapa hinn fegursta heim innra með þér, fylltan friðsælum og kærleiksríkum hugsunum og tilfinningum, því þú veist að það er besta leiðin til að skapa betri heim. lotushus.is

Val

Val Þú ert djúpvitur sál sem skilur að á hverju augnabliki hefurðu val. Þessi vitund veitir þér algjört frelsi og þú velur meðvitað að bregðast við öllum aðstæðum með jákvæðu hugarfari og út frá fullri sjálfsvirðingu. lotushus.is

Leiksvið lífsins

Leiksvið lífsins Þú ert einstök sál með einstakt og fallegt hlutverk í lífinu. Þú nýtur þess að leika hlutverkið þitt en gleymir þó aldrei að þegar öllum hlutverkum sleppir ertu fyrst og fremst friðsæl og kærleiksrík sál. lotushus.is

Go to Top