Lótushús er hugleiðslu- og sjálfsræktarskóli sem býður upp á fjölda námskeiða og viðburða allan ársins hring. Skólinn hefur aðsetur á Garðatorgi, miðbæ Garðabæjar en heldur einnig námskeið víða um land sé þess óskað.

Markmið Lótushúss er að stuðla að jákvæðum breytingum í heiminum í gegnum innri umbreytingu einstaklinga. Á námskeiðunum læra þátttakendur einfaldar en áhrifaríkar aðferðir til að skapa innra jafnvægi, frið og styrk og verða þannig hæfari til að mæta áskorunum daglegs lífs. Með aukinni sjálfsþekkingu eykst einnig kærleikur, hamingja og innri sátt sem hefur djúpstæð áhrif á allt okkar líf.

Öll námskeið eru þátttakendum að kostnaðarlausu en starfið er rekið fyrir frjáls framlög nemenda og leiðbeinenda skólans.

Lótusapp – ókeypis hugleiðsluapp

Lótusapp er gjöf hugleiðsluskólans Lótushúss til íslensks samfélags og er appið notendum að kostnaðarlausu. Hugleiðslurnar eru mislangar og taka á helstu viðfangsefnum sem nútímamanneskjan glímir við í daglegu lífi, m.a. álagi í vinnu og einkalífi, einbeitingarskorti, kvíða og heilsubresti. Hugleiðslurnar eru einfaldar að uppbyggingu en geta verið afar kröftugt tæki til að róa hugann, draga úr streitu og auka gleðina í daglegu lífi.

Sjá nánar um Lótusapp

Umsagnir þátttakenda

„Ég er langskólagengin og get fullyrt að enginn annar skóli hefur gagnast mér jafnvel í lífinu og skóli Lótushúss. Minn mesti lærdómur hefur verið að öðlast dýrmætan frið og ró sem gagnast mér einna best í samskiptum mínum við annað fólk, hvort heldur í nærumhverfinu eða sem á vegi mínum verður, því samskipti við annað fólk er jú það sem fólk metur hve mest þegar það horfir yfir lífsleiðina. Svo hefur ástundunin þær jákvæðu aukaverkanir að maður slakar betur á í líkamanum, streitan hopar og maður fer að sofa betur.“

„Sjálfsmatið var gjörsamlega hrunið en í Lótushúsi tókst mér að byggja það upp á ný á réttum forsendum þ.e. ekki stétt eða stöðu, starfstitli eða afkastagetu heldur hvernig manneskja ég er og hvaða eiginleikum ég er gædd sem sál/persóna. Ég lærði að takast á við kvíða og óvissu án þess að láta það eitra daglegt líf. Lótushús er griðastaður þar sem fallegar sálir, fullar af kærleika, umhyggju og góðvild starfa. Ég vil meina að Lótushús hafi að mörgu leyti bjargað lífi mínu. Þar komst ég upp úr dimmum dal og nálgast óðum fjallatoppinn“

„Allir ættu að fara á amk 1 námskeið í Lótushúsi!!! Dásamlegur staður fyrir fólk sem sækist eftir hugarró og ekki bara þá!
Fleiri umsagnir