Sannleikurinn býr í einfaldleikanum
Nútíma samfélag býður uppá sífellt meira utanaðkomandi áreiti. Mismunandi upplýsingar, kenningar og skoðanir úr öllum áttum geta gert okkur alveg ringluð og orðið til þess að við missum tengslin við okkur sjálf. Hvernig getum við vitað hvað er rétt og hverju er hægt að treysta? Það er ekki alltaf auðvelt að greina það og því [...]
Særðu ekki aðra…en leyfðu þeim ekki heldur að særa þig
Okkur hefur flestum verið innrætt að særa ekki aðra og við leggjum okkur fram við það eftir bestu getu. Oft gleymist hins vegar hin hlið þessarar lífsreglu, það að leyfa ekki öðrum að særa okkur. Mörgum reynist það öllu snúnara og taka inn á sig neikvæðar og niðurbrjótandi hugsanir, orð eða hegðun annarra. Slíkt getur [...]
Leitin að sjálfum sér
Það hljómar undarlega að hægt sé að týna sjálfum sér en margir upplifa það samt að missa tengslin við eigið sjálf og reka stefnulaust áfram í lífinu, oft á skjön við eigin lífsgildi. Slíkt líf minnir meira á svefn en vöku því meðvitundin er aðeins til staðar að hluta til. Sem lítil börn erum við [...]
Dans sálarinnar
Hópur fólks var spurður að því undir hvaða kringumstæðum það upplifði mesta gleði og hamingju. Eftir nokkra umhugsun, svaraði ein konan „þegar ég er sönn og samkvæm sjálfri mér“. Aðrir kinkuðu kolli og það var greinilegt að þetta var upplifun margra. Orðatiltæki segir að „þar sem sannleikur býr, þar dansar sálin“. Ein mikilvægasta forsenda þess [...]
Lærðu að tala fallega við sjálfa/n þig
Margir hafa þann ávana að tala við sjálfan sig af hörku. Oft erum við með óraunhæfar kröfur og væntingar til okkar sjálfra, kröfur sem við myndum aldrei gera til annarra. Við reiðumst okkur sjálfum fyrir að standa okkur ekki nógu vel, vera ekki nógu dugleg, koma ekki nógu vel fyrir, vera ekki nógu þetta eða [...]
Styrkurinn til að fara inn á við
Hefurðu einhvern tímann komið úrvinda úr verslunarleiðangri eða fundist orkan þín á þrotum eftir langan vinnudag? Hefur þér fundist erfitt að vera innan um fólk þar sem neikvæðni er allsráðandi eða á stað þar sem umhverfisáreitið er mikið? Það er á svona stundum sem dýrmætt er að muna eftir styrknum til að fara inn á [...]